Forsíða Tilkynningar Um samtökin Starfsmenn Stjórn Lög
           
Ritaskrá  Fræðsluerindi Náttúrustofuþing   Rannsóknarferðir Samstarfsaðilar  

 

 

Lög Samtaka Náttúrustofa


1. gr. Samtök nátt
úrustofa

a) Náttúrustofur, sem starfa skv. lögum nr. 60/1992, mynda í sameiningu Samtök náttúrustofa (SNS).

b) Aðild að samtökunum eiga: Náttúrustofa Austurlands, Náttúrustofa Suðurlands, Náttúrustofa Vestfjarða, Náttúrustofa Norðurlands vestra, Náttúrustofa Vesturlands, Náttúrustofa Reykjaness og Náttúrustofa Norðausturlands.

c) Heimili samtakanna og varnarþing er hjá þeirri náttúrustofu sem fer með formennsku hverju sinni.


2. gr. Stefnuskrá

Markmið samtakanna eru:

a) Að efla starfsemi náttúrustofanna og hlutverk þeirra í rannsóknum á náttúru Íslands.

b) Að taka til umfjöllunar sameiginleg málefni náttúrustofanna og vera vettvangur skoðana og álitsgerða.

c) Að efla samstarf náttúrustofanna, m.a. stuðla að því að náttúrustofurnar sem heild geti tekið að sér verkefni á sem flestum fagsviðum náttúrufræða. Jafnframt að standa vörð um gæði á rannsóknum og annarri vinnu náttúrustofa.

d) Að efla kynningarstarf og virkni náttúrustofanna í vísindasamfélaginu og efla fræðslu til almennings og skóla um náttúrufræði og umhverfismál.

e) Að samræma og efla vinnu að umhverfismálum sveitarfélaganna í samvinnu við náttúruverndarnefndir og aðrar stofnanir sveitarfélaganna og að stuðla að faglegu samstarfi við umhverfisráðuneytið og aðrar stofnanir á sviði náttúrufræða og náttúruverndar.


3. gr. Stjórn

a) Stjórn samtakanna skipa þrír einstaklingar; Formaður og tveir meðstjórnendur.

b) Stjórn skal kosin á aðalfundi. Aðalfundur ákveður verkaskiptingu stjórnar. Kjörgengir eru forstöðumenn stofanna, eða staðgenglar þeirra.

c) Á hverju ári skal skipt um einn fulltrúa í stjórn. Enginn skal sitja í stjórn lengur en þrjú ár í senn.

d) Stjórn samtakanna vinnur eftir lögum þessum og samþykktum aðalfundar eða félagsfunda og kemur fram fyrir hönd samtakanna.

e) Stjórnin ber ábyrgð á rekstri og fjárhag samtakanna.

f) Aðalfundi, félagsfundum eða stjórn er heimilt að skipa vinnuhópa til að vinna að sérstökum verkefnum eins og ástæða er til á hverjum tíma.


4. gr. Vinnuframlag


Vinnuframlag einstakra stofa í þágu SNS er frjálst og ákvarðanir aðalfundar, stjórnar eða vinnuhópa fela ekki í sér neina vinnukvöð.

5. gr. Fjármál

a) Fjármál samtakanna skulu vera aðskilin fjármálum aðildarstofa.

b) Kostnaður við samtökin skal greiddur af aðildarstofum í jöfnum hlutföllum með árgjöldum, sérstökum framlögum, framlögðum reikningum og sjálfsaflafé samtakanna.

c) Í nóvembermánuði ár hvert gerir stjórn samtakanna rekstraráætlun og sendir aðildarstofum til staðfestingar. Sami háttur skal hafður á ef nauðsynlegt er að taka upp rekstraráætlun á starfsárinu vegna sérstakra verkefna eða aðstæðna.

d) Reikningsár samtakanna er almanaksárið og endurskoðaðir reikningar skulu lagðir fram á aðalfundi.


6. gr. Aðalfundur

 

a) Aðalfundur fer með æðsta vald í málefnum samtakanna. Aðalfund skal halda árlega. Hann skal boða með tryggilegum hætti með a.m.k. þriggja vikna fyrirvara.

b) Seturétt á aðalfundum hafa starfsmenn og stjórnir náttúrustofa.

c) Verkefni aðalfundar eru:
1. Skýrsla stjórnar.
2. Afgreiðsla reikninga.
3. Lagabreytingar.
4. Kosning stjórnar.
5. Skipun í vinnuhópa.
6. Kosning skoðunarmanna reikninga.
7. Ákvörðun um árgjöld og/eða önnur framlög.
8. Önnur mál.

d) Allar náttúrustofurnar skulu hafa fulltrúa á aðalfundi. Aðalfundur telst löglegur sé til hans löglega boðað.

e) Hver náttúrustofa fer með eitt atkvæði á aðalfundum. Aðalfundur er ályktunarfær ef ályktun er samþykkt með meirihluta atkvæða.

f) Forstöðumaður eða staðgengill hans, með skriflegt umboð, fer með atkvæði viðkomandi stofu á fundinum.


7. gr. Félagsfundir

a) Félagsfundi skal halda ef tvær eða fleiri náttúrustofur óska þess. Til þeirra skal boða með tryggilegum hætti.

b) Félagsfundur er ályktanafær ef ályktun er samþykkt með a.m.k. fjórum atkvæðum.


8. gr. Náttúrustofuþing

a) Samtökin halda Náttúrustofuþing eins og ákveðið er á aðalfundi eða félagsfundum.

b) Náttúrustofuþing skulu vera opnir fundir þar sem starfsemi náttúrustofanna er kynnt.

c) Náttúrustofuþing skal auglýsa með a.m.k. þriggja vikna fyrirvara.


9. gr. Breytingar á stofnskrá

 

a) Lögum þessum verður aðeins breytt með samhljóða samþykki aðalfundar eða aukaaðalfundar.

b) Samtökum þessum verður aðeins slitið með ákvörðun aðalfundar eða aukaaðalfundar.

Lög þessi taka þegar gildi.

Samþykkt í Sandgerði, 7. október 2009.